Miðvikudagur, september 08, 2010
   
Leturstærð

Drekarúntur á Frönskum dögum.

Jæja félagar, nú ætlum við að endurtaka leikinn og koma saman á Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði og sýna hjólin eins og við gerðum á síðasta ári.

Hittumst inn við íþróttahús kl. 13:00 á laugardaginn 24. júlí, þar röðum við okkur upp áður en við fáum okkur einn hring í bænum og endum innan við lögreglustöðina þar sem við leyfum fólkinu að skoða fákana okkar.

Athugið, við förum ekki inn í skrúðgönguna eins og auglýst er í dagskrá Franskra daga.



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Ökumaður bifhjóls tekinn fyrir farsímanotkun

Ökumaður bifhjóls tekinn fyrir farsímanotkun

Lögreglumaður á bilfhjóli stöðvaði síðdegis í gær ökumann á Vespu bifhjóli í Reykjavík, fyrir að vera að tala í síma í akstri.

Vespumaðurinn ók um með aðra hönd á stýri, og hina á farsímanum í mikilli umferð og var enn að tala þegar hann var stöðvaður.

Lögreglan telur að þetta sé í fyrsta sinn sem bifhjólamaður er stöðvaður fyrir slíkt athæfi.

-------------------------------

Fengið af Vísi.is



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Flughál möl safnast á gatnamót

Mjög lítið veggrip er þar sem möl safnast á hart slitlag.
Mjög lítið veggrip er þar sem möl safnast á hart slitlag.
Bifhjólamenn segjast í stórhættu þegar þeir fara um illa sópuð vegamót. Þeir hvetja Vegagerðina og sveitarfélög að láta hreinsa þau mun oftar en nú er gert.

Á miðjum gatnamótum safnast gjarnan möl oft þríhyrningslaga hauga. Steinar og laust efni sem liggur á hörðu slitlagi skapar mikla hættu sérstaklega fyrir bifhjólamenn. Smári Sigurjónsson, meðlimur í Drekunum, vélhjólaklúbbi Austurlands, segist tvisvar hafa fallið af vélhjóli á illa sópuðum gatnamótum. Hann segir að fjölfarin gatnamót á Fljótsdalshéraði séu sérstaklega slæm og vélhjólamenn sem komi að taki undir það. Hann gagnrýnir verktaka fyrir að moka of mikilli möl á bíla með þeim afleiðingum að hún flæði yfir vegi.

Hér má horfa á viðtal við Smára.

Smári Sigurjónsson



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Alþjóðlegi „Hjólað“ í vinnuna dagurinn (Internatunal Ride to work day)

Félagar, lítið á þennan línk, átak hjá Sniglum, til fyrirmyndar: http://sniglar.is/sniglar/allarfrettir/item/516-hjoladi-vinnuna

 



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Fjölförnustu gatnamót Austurlands 16. júní 2010

 100616_Gatnamot_Eg

Þarna var verið að malbika þann 14. júní. Ég var nú heldur kátur og bjóst við að það yrði eitthvað hreinsað í leiðinni. Ekki var það nú gert og eru gatnamótin nú ENN VERRI EN ÁÐUR!



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

„Kókapuffs“ - Einn versti óvinur bifhjólamannsins

Ágætu meðlimir og aðrir bifhjólamenn.

Í gær, þann 3. júní, tók ég rúnt á Egilsstöðum á mínu ágæta hjóli kl. 16:30. Fór um allmörg gatnamót, ætíð með í huga að þar gæti leynst möl, sandur og annað sem tilheyrir ekki okkar íslenska malbiki, þó malbikið okkar sé vissulega ekki á heimsmælikvarða. Skellti mér í heita pottinn og þegar ég var búinn þar, eftir ca. 1,5 klst tók ég annan svipaðan hring þar sem veðrið bauð engan veginn upp á að fara beint heim. Nema hvað: Hefði ég ekki farið yfir með mín föstu varnarorð í huganum, sem ég geri alltaf þegar ég sest á hjólið og set í gang, þá hefði ég verið í háum áhættuflokki með að dúndrast á hliðina í sömu beygjunum sem voru þokkalegar hreinar stuttu áður. Mitt fyrsta „persónulega varnarorð er: KÓKAPUFFS! Greinilegt var, að einhver ágætur/ágætir verktakar höfðu ekið sömu leið og ég, ekki með það í huga að hugsa um öryggi okkar, sem og annara vegfaranda, heldur hugsa um að koma sem mestu efni á trukkana á kostnað öryggis okkar og annara vegfarenda en sínum fjárhag til framdráttar, þe. koma sem mestu efni með í hverri ferð. Skiljanlegt að hluta en allt hefur sín takmörk. Með þessari grein, fylgja nokkrar myndir sem ég tók í dag til að sýna myndrænt hversu alvarlegt þetta er, svo ég noti þekkt hugtak: Myndir segja meira en mörg orð.

#29 Smári Sigurjónsson, meðlimur og stjórnarmaður Vélhjólaklúbbs Austurlands - DREKAR

DSC00897

Elstu krossgötur Egillstaða - Horft innan af Vallavegi út nesið í átt að Bónus

DSC00898

Elstu krossgötur Egillstaða - Horft upp Fagradalsbraut, aksturstefna að Fjarðabyggð

DSC00899

Elstu krossgötur Egillstaða - Horft upp að Samkaup ( KAUPFÉLAGINU)

 

DSC00901

Gatnamót: Til vinstri: Seyðisfjörður/Eiðar/Úthérað - Beint áfram til Fáskrúðsfjarðar (Fjarðabyggð)

DSC00902

Gatnamót: Til vinstri: Seyðisfjörður/Eiðar/Úthérað

DSC00903

Síðustu metrarnir að gatnamótunum: Seyðisfjörður, Eiðar Úthérað / Fáskrúðsfjarðar (Fjarðabyggð), í bakgrunni Bóasarhús

 

 

 

 

 

 

 

 

 



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Síða 1 af 7

Fréttaskot

Miðvikudaginn 9. júní tóku Stjórn og Umferðaröryggisnefnd sameiginlegan fund og mun fljótlega birtast í stærri miðlum samantekt okkar og áskoranir. Vil þakka öllum sem komu að efni málefnisins stórgóðar undirtektir. Þakka einnig félögum fyrir skemmtilegan hópakstur frá Reyðarfirði til Breiðdalsvíkur sem var skemmtileg viðbót við fundinn. Að sitja fund og sitja hjól getur oft farið samanCool

#29 Smári Sigurjónsson - Meðstjórnandi og sitjandi í ritnefnd Vélhjólaklúbbs Austurlands - DREKAR - www.drekar.is

 

Dreka afmæli

Eftir 7 daga
Eftir 9 daga

Á Döfinni

 

Nýtt á DrekaSpjallinu

Meira...


Tengdir notendur

Tengdir Drekar:
Enginn Dreki tengdur
Tengdir notendur eru alls: 19
þar af 0 Drekar og 19 gestir

Drekar

Teljarinn

Skoða innlit efnis : 11347

Mótorhjólasafn Íslands

  • Vantar aðstoð
    Nú eru hurðirnar á neðri hæðina komnar í hús og okkur vantar smið til að...
  • Hjóladagar
    Hjóladagar tókust með ágætum og mættu yfir 200 manns inn á safn á föstudagskvöldinu. Katý...
  • Gjöf frá JHM sport
    Jón Magg hjá JHM sport hafði samband og lagði til 100.000 krónur í safnið með...

 

 

 

cialis online | cialis sales uk | viagra 100mg price | buy cialis no prescription | cheap viagra uk | cheap viagra uk | discount viagra | buy cialis online | viagra pills for sale | real viagra | order viagra online | generic viagra canada | viagra price