Er Hlífðarfatnaðurinn þinn CE merktur ?
Samkvæmt drögum að nýjum umferðarlögum er verið að skylda mótorhjólfólk á Íslandi til að nota staðlaðann hlífðarfatnað. Þarf allur gallinn þá að vera með CE merkingum sem þýðir einfaldlega að hann standist ákveðnar gerðir prófana, ef framleiðandi vill merkja hann þannig. Þetta eru Evrópureglur þannig að gallar framleiddir fyrir önnur markaðssvæði eru oftar en ekki án CE merkinga. Á Íslandi er löng og góð hefð fyrir notkun hlífðarfatnaðar og er Ísland líklega síðasta landið sem að þarf á slíkum lögum að halda. Norðmenn settu á svona lög fyrir nokkrum árum en drógu svo þá lagasetningu til baka þar sem að hún var talin ganga of langt.
Íslenskt hjólafólk er á sama máli, og hafa Sniglar með stuðningi LÍM mótmælt þessari lagasetningu og lagt til að hún verði einskorðuð við þá sem hafa mótorhjól að atvinnu. Hjólafólk.is er að kanna hvernig galla fólk á hérlendis og hvort hann sé yfir höfuð CE merktur. Viljum við því biðja ykkur ágæta hjólafólk að taka þátt í þessari könnun til að hjálpa okkur í baráttunni. Við viljum semsagt að þú skoðir gallann þinn og sjáir hvort að hann sé með CE merkingum og hvort að einstakir hlutar hans innihaldi eftirfarandi staðla:
Hjálmar – ECE 22.05
Stígvél – CE EN 13634
Jakka og buxur – CE EN 13595
Hlífar – CE EN 1621
Hanskar – CE EN 13594
Gleraugu – CE EN 1938
Til að skoða hlífarnar gætir þú þurft að taka þær úr gallanum en staðallinn á að vera þrykktur í efnið. Á hjálminum er merkingin annað hvort aftan á eða á miðanum inni í hjálminum, sem og á öðrum hlutum. Þessi könnun gæti gagnast vel og mikilvægt að em flestir taki þátt og á sem skemmstum tíma. Taktu þátt. Hjólafólk á Íslandi notar hlífðarfatnað. Þess vegna þarf ekki að setja það í lög! Könnunin er hér á heimasíðunni hjolafolk.is
BMW hjólamenn verða á norðausturhorninu
Nú stendur til að BMW hjólamenn ætli sér að koma á Héraðið 23 ágúst, það er búið að starta umræðu á drekaspjallinu hvort einhverjir hafi áhuga á að hjóla með þeim einhvern spotta.
Endilega látið í ykkur heyra ef það er áhugi, veðrið verður víst hliðhollt hjólafólki um helgina....
Síða 5 af 7
Fréttaskot
Miðvikudaginn 9. júní tóku Stjórn og Umferðaröryggisnefnd sameiginlegan fund og mun fljótlega birtast í stærri miðlum samantekt okkar og áskoranir. Vil þakka öllum sem komu að efni málefnisins stórgóðar undirtektir. Þakka einnig félögum fyrir skemmtilegan hópakstur frá Reyðarfirði til Breiðdalsvíkur sem var skemmtileg viðbót við fundinn. Að sitja fund og sitja hjól getur oft farið saman
#29 Smári Sigurjónsson - Meðstjórnandi og sitjandi í ritnefnd Vélhjólaklúbbs Austurlands - DREKAR - www.drekar.is
Dreka afmæli
Nýtt á DrekaSpjallinu
- Landsmót ????? 24-06-2010 22:17 Kári
- -selt- Yamaha Virago 750cc -selt- 16-06-2010 19:32 Ófeigur
- Vegna:Til sölu Honda transalp 08-06-2010 23:59 Kári
- Vegna:Er ekki kominn tími 26-05-2010 01:36 Smári
- Vegna:Er ekki kominn tími 25-05-2010 22:09 Siggi
- Vegna:Er ekki kominn tími 18-05-2010 00:50 Smári
- Er ekki kominn tími 09-05-2010 13:22 Jens
- Yamaha Vstar 650. 02-05-2010 19:09 Högni
Tengdir notendur
| Tengdir Drekar: |
| Enginn Dreki tengdur |
| Tengdir notendur eru alls: 12 þar af 0 Drekar og 12 gestir |
Teljarinn
Dreka Fréttir
- Ökumaður bifhjóls tekinn fyrir farsímanotkun
- Fjölförnustu gatnamót Austurlands 16. júní 2010
- Drekar #12 og #57 leggja land undir hjól...
- „Kókapuffs“ - Einn versti óvinur bifhjólamannsins
- 1. maí - Látum í okkur heyrast !
- Sitt sýnist hverjum...
- AÐALFUNDUR 2010
- Sniglar - klúbbur eða hagsmunasamtök ?
- Jólakveðja
- Það væri gaman að sjá þessi hjól á götunum 2010...
Mótorhjólasafn Íslands
-
Vantar aðstoðNú eru hurðirnar á neðri hæðina komnar í hús og okkur vantar smið til að...
- Hjóladagar
Hjóladagar tókust með ágætum og mættu yfir 200 manns inn á safn á föstudagskvöldinu. Katý...- Gjöf frá JHM sport
Jón Magg hjá JHM sport hafði samband og lagði til 100.000 krónur í safnið með... - Hjóladagar









