Miðvikudagur, september 08, 2010
   
Leturstærð

Drekar #12 og #57 leggja land undir hjól...

Unnur #57 og Högni Páll #12 eru lögð af stað í 6 vikna túr um Evrópu. Áhugasamir geta fylgst með þeim hér.

DSC07972_hjl

DSC07977_hjl

 



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Lausamöl.

Þá er sumarið að koma, starfsmenn Vegagerðarinnar farnir að leggja lausamölina á vegi landsins. Tongue out

Ég fékk fréttir af því í morgun (4.júní) að verið sé að leggja slitlag í Oddskarðinu.


Hjólum heil heim.



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Skoðunardagur.

Drekar: Hjólaskoðunardagur Dreka er næsta þriðjudag hjá Aðalskoðun (Bíley) á Reyðarfirði.

Byrjað verður að skoða kl. 18:00 og haldið áfram þar til allir hafa fengið skoðun.

30% afsláttur er fyrir þá sem mæta í þessa sérstöku Drekaskoðun, (mætum að sjálfsögðu með Drekakortin okkar).

Sjáumst hress og kát.

Viðburðanefndin



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

1. maí - Látum í okkur heyrast !

Hópakstur mótorhjólafólks

Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna.

Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.

Árekstur mótorhjóls

Um kl 13:00 verður mótorhjól látið falla úr 10 metra hæð til að líkja eftir árekstri mótorhjóls við fastan hlut á um það bil 50 km/klst. Fallið ætti að sýna vel höggið við árekstur mótorhjóls.

Hjólið verður til sýnis eftir „áreksturinn“ á sýningunni Burnout 2010 og „droppið“ verður myndað á high speed video vélar að hætti Mythbusters.

Íslandsmeistaramótið í hjólafimi - vegleg verðlaun

Klukkan 14:00 verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslitin ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni.  Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði.

Verðlaunin eru ekki af verri endanum  

      1.       Verðlaun – 60.000 kr. Bensín úttekt frá Orkunni

      2.       Verðlaun – Hjálmur frá Suzuki umboðinu

      3.       Verðlaun – 20.000 kr. Gjafabréf frá IKEA

Stigahæsta kona – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Stigahæsti karl – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni

Hægt er að skrá sig til keppni með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða á staðnum fyrir keppni. Skilyrði fyri þátttöku er að vera með mótorhjólapróf.

Sýning

Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða.  Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.

Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á  sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssini. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.

Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.

Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Biker Ball

Eftir að hafa hjólað frá okkur mest allt vit í hópkeyrslunni um daginn þá ætlum við að skemmta frá okkur því viti sem eftir er að kvöldi 1. maí á Players Kópavogi. Rokk/blues bandið Síðasti Séns leikur fyrir dönsum og djammi með DJ Mikkólf sér til halds og trausts.

Miðaverði hefur verið stillt í hóf og inn kostar litlar 1500 krónur íslenskar. Ekki þýðir að borga með erlendum gjaldeyri, við komust hvort eð er ekkert út til að eyða honum.  Bandið samanstendur af þaulreyndum djammhundum sem marga fjöruna hafa sopið og DJ Mikkólfur hefur sopið þær tvær eða þrjár, enda fjöru áhuga maður mikill.

Rokk, Ról og Mótorhjól.

Kveðja,
Sniglar
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.sniglar.is



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Stjórn og nefndir

Á aðalfundinum í síðustu viku var að kosið í stjórn og nefndir og eru þær þannig skipaðar:

Í stjórninni eru: Níels #36 Formaður, Einar #8 Gjaldkeri, Högni #12 Meðstjórnandi, Smári #29 Meðstjórnandi,

Óskar #59 Meðstjórnandi, Gunnar #37 Varamaður og Björn Starri #27 Varamaður.

 

Skoðunarmenn reikninga: Hlífar #4 og Ólöf #61.

 

Umferðaröryggisnefnd (UÖN): Hlífar #4, Grétar #1 og Binni #25.

 

Viðburðanefnd: Malla #60, Óli Níels #14, Ægir #75, Rósi #50 og Ómar #35.

 

 Ritnefnd: Þórunn #46, Níels #36, Smári #29, Siggi #15 og Börkur #85.

 



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Planið hjá póstinum - miðvikudag 14. Kl.19.00.

Spáinn fyrir miðvikudagskvöld: Hæg vestan átt , heiðskýrt, hiti 7-9 gráður.

Verður það eitthvað betra? Þá er bara að drífa sig í gallann og mæta.



Segðu frá þessu á:
Facebook!
 

Síða 2 af 7

Fréttaskot

Miðvikudaginn 9. júní tóku Stjórn og Umferðaröryggisnefnd sameiginlegan fund og mun fljótlega birtast í stærri miðlum samantekt okkar og áskoranir. Vil þakka öllum sem komu að efni málefnisins stórgóðar undirtektir. Þakka einnig félögum fyrir skemmtilegan hópakstur frá Reyðarfirði til Breiðdalsvíkur sem var skemmtileg viðbót við fundinn. Að sitja fund og sitja hjól getur oft farið samanCool

#29 Smári Sigurjónsson - Meðstjórnandi og sitjandi í ritnefnd Vélhjólaklúbbs Austurlands - DREKAR - www.drekar.is

 

Dreka afmæli

Eftir 7 daga
Eftir 9 daga

Á Döfinni

 

Nýtt á DrekaSpjallinu

Meira...


Tengdir notendur

Tengdir Drekar:
Enginn Dreki tengdur
Tengdir notendur eru alls: 24
þar af 0 Drekar og 24 gestir

Drekar

Teljarinn

Skoða innlit efnis : 11346

Mótorhjólasafn Íslands

  • Vantar aðstoð
    Nú eru hurðirnar á neðri hæðina komnar í hús og okkur vantar smið til að...
  • Hjóladagar
    Hjóladagar tókust með ágætum og mættu yfir 200 manns inn á safn á föstudagskvöldinu. Katý...
  • Gjöf frá JHM sport
    Jón Magg hjá JHM sport hafði samband og lagði til 100.000 krónur í safnið með...

 

 

 

cheap viagra pills | real viagra | cialis sales uk | generic viagra online | canada viagra | cialis online | cheap viagra | viagra pills | order viagra online | buy cialis | discount viagra canada | cialis no prescription | viagra 100mg