„Kókapuffs“ - Einn versti óvinur bifhjólamannsins
Ágætu meðlimir og aðrir bifhjólamenn.
Í gær, þann 3. júní, tók ég rúnt á Egilsstöðum á mínu ágæta hjóli kl. 16:30. Fór um allmörg gatnamót, ætíð með í huga að þar gæti leynst möl, sandur og annað sem tilheyrir ekki okkar íslenska malbiki, þó malbikið okkar sé vissulega ekki á heimsmælikvarða. Skellti mér í heita pottinn og þegar ég var búinn þar, eftir ca. 1,5 klst tók ég annan svipaðan hring þar sem veðrið bauð engan veginn upp á að fara beint heim. Nema hvað: Hefði ég ekki farið yfir með mín föstu varnarorð í huganum, sem ég geri alltaf þegar ég sest á hjólið og set í gang, þá hefði ég verið í háum áhættuflokki með að dúndrast á hliðina í sömu beygjunum sem voru þokkalegar hreinar stuttu áður. Mitt fyrsta „persónulega varnarorð er: KÓKAPUFFS! Greinilegt var, að einhver ágætur/ágætir verktakar höfðu ekið sömu leið og ég, ekki með það í huga að hugsa um öryggi okkar, sem og annara vegfaranda, heldur hugsa um að koma sem mestu efni á trukkana á kostnað öryggis okkar og annara vegfarenda en sínum fjárhag til framdráttar, þe. koma sem mestu efni með í hverri ferð. Skiljanlegt að hluta en allt hefur sín takmörk. Með þessari grein, fylgja nokkrar myndir sem ég tók í dag til að sýna myndrænt hversu alvarlegt þetta er, svo ég noti þekkt hugtak: Myndir segja meira en mörg orð.
#29 Smári Sigurjónsson, meðlimur og stjórnarmaður Vélhjólaklúbbs Austurlands - DREKAR

Elstu krossgötur Egillstaða - Horft innan af Vallavegi út nesið í átt að Bónus

Elstu krossgötur Egillstaða - Horft upp Fagradalsbraut, aksturstefna að Fjarðabyggð

Elstu krossgötur Egillstaða - Horft upp að Samkaup ( KAUPFÉLAGINU)

Gatnamót: Til vinstri: Seyðisfjörður/Eiðar/Úthérað - Beint áfram til Fáskrúðsfjarðar (Fjarðabyggð)

Gatnamót: Til vinstri: Seyðisfjörður/Eiðar/Úthérað

Síðustu metrarnir að gatnamótunum: Seyðisfjörður, Eiðar Úthérað / Fáskrúðsfjarðar (Fjarðabyggð), í bakgrunni Bóasarhús
Fréttaskot
Miðvikudaginn 9. júní tóku Stjórn og Umferðaröryggisnefnd sameiginlegan fund og mun fljótlega birtast í stærri miðlum samantekt okkar og áskoranir. Vil þakka öllum sem komu að efni málefnisins stórgóðar undirtektir. Þakka einnig félögum fyrir skemmtilegan hópakstur frá Reyðarfirði til Breiðdalsvíkur sem var skemmtileg viðbót við fundinn. Að sitja fund og sitja hjól getur oft farið saman
#29 Smári Sigurjónsson - Meðstjórnandi og sitjandi í ritnefnd Vélhjólaklúbbs Austurlands - DREKAR - www.drekar.is
Dreka afmæli
Nýtt á DrekaSpjallinu
- Landsmót ????? 24-06-2010 22:17 Kári
- -selt- Yamaha Virago 750cc -selt- 16-06-2010 19:32 Ófeigur
- Vegna:Til sölu Honda transalp 08-06-2010 23:59 Kári
- Vegna:Er ekki kominn tími 26-05-2010 01:36 Smári
- Vegna:Er ekki kominn tími 25-05-2010 22:09 Siggi
- Vegna:Er ekki kominn tími 18-05-2010 00:50 Smári
- Er ekki kominn tími 09-05-2010 13:22 Jens
- Yamaha Vstar 650. 02-05-2010 19:09 Högni
Tengdir notendur
| Tengdir Drekar: |
| Enginn Dreki tengdur |
| Tengdir notendur eru alls: 19 þar af 0 Drekar og 19 gestir |
Teljarinn
Dreka Fréttir
- Ökumaður bifhjóls tekinn fyrir farsímanotkun
- Fjölförnustu gatnamót Austurlands 16. júní 2010
- Drekar #12 og #57 leggja land undir hjól...
- „Kókapuffs“ - Einn versti óvinur bifhjólamannsins
- 1. maí - Látum í okkur heyrast !
- Sitt sýnist hverjum...
- AÐALFUNDUR 2010
- Sniglar - klúbbur eða hagsmunasamtök ?
- Jólakveðja
- Það væri gaman að sjá þessi hjól á götunum 2010...
Mótorhjólasafn Íslands
-
Vantar aðstoðNú eru hurðirnar á neðri hæðina komnar í hús og okkur vantar smið til að...
- Hjóladagar
Hjóladagar tókust með ágætum og mættu yfir 200 manns inn á safn á föstudagskvöldinu. Katý...- Gjöf frá JHM sport
Jón Magg hjá JHM sport hafði samband og lagði til 100.000 krónur í safnið með... - Hjóladagar







