drekar.is
Drekarúntur á Frönskum dögum.
Jæja félagar, nú ætlum við að endurtaka leikinn og koma saman á Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði og sýna hjólin eins og við gerðum á síðasta ári.
Hittumst inn við íþróttahús kl. 13:00 á laugardaginn 24. júlí, þar röðum við okkur upp áður en við fáum okkur einn hring í bænum og endum innan við lögreglustöðina þar sem við leyfum fólkinu að skoða fákana okkar.
Athugið, við förum ekki inn í skrúðgönguna eins og auglýst er í dagskrá Franskra daga.
Ökumaður bifhjóls tekinn fyrir farsímanotkun
Lögreglumaður á bilfhjóli stöðvaði síðdegis í gær ökumann á Vespu bifhjóli í Reykjavík, fyrir að vera að tala í síma í akstri.
Vespumaðurinn ók um með aðra hönd á stýri, og hina á farsímanum í mikilli umferð og var enn að tala þegar hann var stöðvaður.
Lögreglan telur að þetta sé í fyrsta sinn sem bifhjólamaður er stöðvaður fyrir slíkt athæfi.
-------------------------------
Fengið af Vísi.is
Flughál möl safnast á gatnamót
Á miðjum gatnamótum safnast gjarnan möl oft þríhyrningslaga hauga. Steinar og laust efni sem liggur á hörðu slitlagi skapar mikla hættu sérstaklega fyrir bifhjólamenn. Smári Sigurjónsson, meðlimur í Drekunum, vélhjólaklúbbi Austurlands, segist tvisvar hafa fallið af vélhjóli á illa sópuðum gatnamótum. Hann segir að fjölfarin gatnamót á Fljótsdalshéraði séu sérstaklega slæm og vélhjólamenn sem komi að taki undir það. Hann gagnrýnir verktaka fyrir að moka of mikilli möl á bíla með þeim afleiðingum að hún flæði yfir vegi.
Hér má horfa á viðtal við Smára.

Smári Sigurjónsson
Alþjóðlegi „Hjólað“ í vinnuna dagurinn (Internatunal Ride to work day)
Félagar, lítið á þennan línk, átak hjá Sniglum, til fyrirmyndar: http://sniglar.is/sniglar/allarfrettir/item/516-hjoladi-vinnuna
Fjölförnustu gatnamót Austurlands 16. júní 2010

Þarna var verið að malbika þann 14. júní. Ég var nú heldur kátur og bjóst við að það yrði eitthvað hreinsað í leiðinni. Ekki var það nú gert og eru gatnamótin nú ENN VERRI EN ÁÐUR!
„Kókapuffs“ - Einn versti óvinur bifhjólamannsins
Ágætu meðlimir og aðrir bifhjólamenn.
Í gær, þann 3. júní, tók ég rúnt á Egilsstöðum á mínu ágæta hjóli kl. 16:30. Fór um allmörg gatnamót, ætíð með í huga að þar gæti leynst möl, sandur og annað sem tilheyrir ekki okkar íslenska malbiki, þó malbikið okkar sé vissulega ekki á heimsmælikvarða. Skellti mér í heita pottinn og þegar ég var búinn þar, eftir ca. 1,5 klst tók ég annan svipaðan hring þar sem veðrið bauð engan veginn upp á að fara beint heim. Nema hvað: Hefði ég ekki farið yfir með mín föstu varnarorð í huganum, sem ég geri alltaf þegar ég sest á hjólið og set í gang, þá hefði ég verið í háum áhættuflokki með að dúndrast á hliðina í sömu beygjunum sem voru þokkalegar hreinar stuttu áður. Mitt fyrsta „persónulega varnarorð er: KÓKAPUFFS! Greinilegt var, að einhver ágætur/ágætir verktakar höfðu ekið sömu leið og ég, ekki með það í huga að hugsa um öryggi okkar, sem og annara vegfaranda, heldur hugsa um að koma sem mestu efni á trukkana á kostnað öryggis okkar og annara vegfarenda en sínum fjárhag til framdráttar, þe. koma sem mestu efni með í hverri ferð. Skiljanlegt að hluta en allt hefur sín takmörk. Með þessari grein, fylgja nokkrar myndir sem ég tók í dag til að sýna myndrænt hversu alvarlegt þetta er, svo ég noti þekkt hugtak: Myndir segja meira en mörg orð.
#29 Smári Sigurjónsson, meðlimur og stjórnarmaður Vélhjólaklúbbs Austurlands - DREKAR

Elstu krossgötur Egillstaða - Horft innan af Vallavegi út nesið í átt að Bónus

Elstu krossgötur Egillstaða - Horft upp Fagradalsbraut, aksturstefna að Fjarðabyggð

Elstu krossgötur Egillstaða - Horft upp að Samkaup ( KAUPFÉLAGINU)

Gatnamót: Til vinstri: Seyðisfjörður/Eiðar/Úthérað - Beint áfram til Fáskrúðsfjarðar (Fjarðabyggð)

Gatnamót: Til vinstri: Seyðisfjörður/Eiðar/Úthérað

Síðustu metrarnir að gatnamótunum: Seyðisfjörður, Eiðar Úthérað / Fáskrúðsfjarðar (Fjarðabyggð), í bakgrunni Bóasarhús
Drekar #12 og #57 leggja land undir hjól...
Unnur #57 og Högni Páll #12 eru lögð af stað í 6 vikna túr um Evrópu. Áhugasamir geta fylgst með þeim hér.


Lausamöl.
Þá er sumarið að koma, starfsmenn Vegagerðarinnar farnir að leggja lausamölina á vegi landsins. 
Ég fékk fréttir af því í morgun (4.júní) að verið sé að leggja slitlag í Oddskarðinu.
Hjólum heil heim.
Skoðunardagur.
Drekar: Hjólaskoðunardagur Dreka er næsta þriðjudag hjá Aðalskoðun (Bíley) á Reyðarfirði.
Byrjað verður að skoða kl. 18:00 og haldið áfram þar til allir hafa fengið skoðun.
30% afsláttur er fyrir þá sem mæta í þessa sérstöku Drekaskoðun, (mætum að sjálfsögðu með Drekakortin okkar).
Sjáumst hress og kát.
Viðburðanefndin
1. maí - Látum í okkur heyrast !
Hópakstur mótorhjólafólks
Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna.
Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.
Árekstur mótorhjóls
Um kl 13:00 verður mótorhjól látið falla úr 10 metra hæð til að líkja eftir árekstri mótorhjóls við fastan hlut á um það bil 50 km/klst. Fallið ætti að sýna vel höggið við árekstur mótorhjóls.
Hjólið verður til sýnis eftir „áreksturinn“ á sýningunni Burnout 2010 og „droppið“ verður myndað á high speed video vélar að hætti Mythbusters.
Íslandsmeistaramótið í hjólafimi - vegleg verðlaun
Klukkan 14:00 verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslitin ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni. Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum
1. Verðlaun – 60.000 kr. Bensín úttekt frá Orkunni
2. Verðlaun – Hjálmur frá Suzuki umboðinu
3. Verðlaun – 20.000 kr. Gjafabréf frá IKEA
Stigahæsta kona – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Stigahæsti karl – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Hægt er að skrá sig til keppni með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða á staðnum fyrir keppni. Skilyrði fyri þátttöku er að vera með mótorhjólapróf.
Sýning
Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða. Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssini. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.
Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.
Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Biker Ball
Eftir að hafa hjólað frá okkur mest allt vit í hópkeyrslunni um daginn þá ætlum við að skemmta frá okkur því viti sem eftir er að kvöldi 1. maí á Players Kópavogi. Rokk/blues bandið Síðasti Séns leikur fyrir dönsum og djammi með DJ Mikkólf sér til halds og trausts.
Miðaverði hefur verið stillt í hóf og inn kostar litlar 1500 krónur íslenskar. Ekki þýðir að borga með erlendum gjaldeyri, við komust hvort eð er ekkert út til að eyða honum. Bandið samanstendur af þaulreyndum djammhundum sem marga fjöruna hafa sopið og DJ Mikkólfur hefur sopið þær tvær eða þrjár, enda fjöru áhuga maður mikill.
Rokk, Ról og Mótorhjól.
Kveðja,
Sniglar
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
www.sniglar.is
Stjórn og nefndir
Á aðalfundinum í síðustu viku var að kosið í stjórn og nefndir og eru þær þannig skipaðar:
Í stjórninni eru: Níels #36 Formaður, Einar #8 Gjaldkeri, Högni #12 Meðstjórnandi, Smári #29 Meðstjórnandi,
Óskar #59 Meðstjórnandi, Gunnar #37 Varamaður og Björn Starri #27 Varamaður.
Skoðunarmenn reikninga: Hlífar #4 og Ólöf #61.
Umferðaröryggisnefnd (UÖN): Hlífar #4, Grétar #1 og Binni #25.
Viðburðanefnd: Malla #60, Óli Níels #14, Ægir #75, Rósi #50 og Ómar #35.
Ritnefnd: Þórunn #46, Níels #36, Smári #29, Siggi #15 og Börkur #85.
Sitt sýnist hverjum...
Mono-weel eru smíðuð fyrir þá sem hafa ekki efni á “venjulegum“ mótorhjólum.

Menn bara redda sér ef þeir eru gjarnir á að detta.....

Ferrari eru að koma sterkir inn á hjólamarkaðinn....


Það komst vírus í teikniforritið hjá BMW.... þetta eru afleiðingarnar

Þessi maður tapaði í torfærukeppni mótorhjóla í fyrra, hann ætla ekki að láta það koma fyrir aftur og mætir svona útbúinn til leiks þetta árið.

Snilldar hugmynd til að sameina áhugamálin sín


AÐALFUNDUR 2010
Aðalfundur DREKA vélhjólaklúbbs austurlands 2010.
Staður: Björgunarsveitarhúsið Fáskrúðsfirði
Dagur: miðvikudagur 7. apríl
Tími: kl: 20.00.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf og inntaka nýrra félaga.
Nýir félagar velkomnir.
Sniglar - klúbbur eða hagsmunasamtök ?
Á aðalfundi Sniglanna var samþykkt stefnuyfilýsing þar sem þeir skilgreina sig sem hagsmunasamtök fremur en klúbb bifhjólafólks. Yfirlýsingun í heild má nálgast hér: http://sniglar.is/component/k2/item/299-stefnuyfirlýsing-bifhjólasamtaka-lýðveldisins-snigla
DAYTONA BIKEWEEK 2010
Hæ og gledilegt hjólaár. Ég er ad kynna ferdina mina til Daytona bikeweek í mars 3 til 13. verðið er frá 98 þús og er ad finna hjá Icelandair,sérferdir. þad væri nú gaman ad sjá íslenska DREKA á Daytona Bikeweek 
KV Haddi Emils.
email Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. S: 893 4453
Það væri gaman að sjá þessi hjól á götunum 2010...
CanAm-SpyderRT Audio and Convenience Roadster

Vélsleði bíll mótorhjól ???????

Ekki má gleyma kerrunni, það þarf að koma garðúrganginum á haugana....

Rollsinn frá Rússlandi....Ural-Retro-Red afmælisútgáfa framleidd í október 2010

Þeir sem tóku þessar myndir reyndu hvað þeir gátu til að reyna ná fram hráa rauða litnum sem er á hjólinu uppá skjáinn, en það tókst ekki..... ef þú sérð eitthvað fallegt við þennann lit á þessum myndum þá er það ekki rétti liturinn......

Ridley - The Twin - Breska útgáfan.......

Royal Enfield-Bullet G5 Classic EFI - Klassískt og fallegt hjól

Eitt flott keppnis í restina.... Phantom - EG

Þessi hjól og fleiri er hægt að sjá á þessari síðu
Nýjasta hjólið í flotanum
Nýjasta hjólið í flotanum á leiðinni heim, Högni Páll var að leggja af stað frá Reykjavík um klukkan 10 í morgun á glænýju Suzuki V-Strom 650 sem er frekar merkilegt á þessum árstíma
Unnur til hamingju með nýja hjólið!
JÓLAGJAFIRNAR
Ekki gleyma góðir félagar hvar jólagjafirnar fást.
Farið inná www.merkt.is og smellið á "klúbbar" þá á "Drekar" síðan er það notendanafn "drekar" og password "austur".
Ef að þetta vefst eitthvað fyrir ykkur eða ef þið hafið séróskir eða einhverjar sérþarfir varðandi vörur þá bara hringið þið í þessar elskur hjá Merkt og þær leysa málin fyrir ykkur.
Munið bara að panta tímanlega til að hægt sé að afgreiða pöntun ykkar fyrir jól.
Síða 1 af 3
Fréttaskot
Miðvikudaginn 9. júní tóku Stjórn og Umferðaröryggisnefnd sameiginlegan fund og mun fljótlega birtast í stærri miðlum samantekt okkar og áskoranir. Vil þakka öllum sem komu að efni málefnisins stórgóðar undirtektir. Þakka einnig félögum fyrir skemmtilegan hópakstur frá Reyðarfirði til Breiðdalsvíkur sem var skemmtileg viðbót við fundinn. Að sitja fund og sitja hjól getur oft farið saman
#29 Smári Sigurjónsson - Meðstjórnandi og sitjandi í ritnefnd Vélhjólaklúbbs Austurlands - DREKAR - www.drekar.is
Dreka afmæli
Nýtt á DrekaSpjallinu
- Landsmót ????? 24-06-2010 22:17 Kári
- -selt- Yamaha Virago 750cc -selt- 16-06-2010 19:32 Ófeigur
- Vegna:Til sölu Honda transalp 08-06-2010 23:59 Kári
- Vegna:Er ekki kominn tími 26-05-2010 01:36 Smári
- Vegna:Er ekki kominn tími 25-05-2010 22:09 Siggi
- Vegna:Er ekki kominn tími 18-05-2010 00:50 Smári
- Er ekki kominn tími 09-05-2010 13:22 Jens
- Yamaha Vstar 650. 02-05-2010 19:09 Högni
Tengdir notendur
| Tengdir Drekar: |
| Enginn Dreki tengdur |
| Tengdir notendur eru alls: 12 þar af 0 Drekar og 12 gestir |
Teljarinn
Dreka Fréttir
- Ökumaður bifhjóls tekinn fyrir farsímanotkun
- Fjölförnustu gatnamót Austurlands 16. júní 2010
- Drekar #12 og #57 leggja land undir hjól...
- „Kókapuffs“ - Einn versti óvinur bifhjólamannsins
- 1. maí - Látum í okkur heyrast !
- Sitt sýnist hverjum...
- AÐALFUNDUR 2010
- Sniglar - klúbbur eða hagsmunasamtök ?
- Jólakveðja
- Það væri gaman að sjá þessi hjól á götunum 2010...
Mótorhjólasafn Íslands
-
Vantar aðstoðNú eru hurðirnar á neðri hæðina komnar í hús og okkur vantar smið til að...
- Hjóladagar
Hjóladagar tókust með ágætum og mættu yfir 200 manns inn á safn á föstudagskvöldinu. Katý...- Gjöf frá JHM sport
Jón Magg hjá JHM sport hafði samband og lagði til 100.000 krónur í safnið með... - Hjóladagar








